10.11.26 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Ætla ekki að rifta lánssamningi Grealish

Jack Grealish

Mynd: EPA

Jack Grealish

Mynd: EPA
Enski vængmaðurinn Jack Grealish mun klára tímabilið hjá Everton, en frá þessu greinir TeamTalk.

TENGT EFNI
Moyes: Grealish getur snúið aftur
Grealish kom til Everton á láni frá Manchester City í annað sinn í lok sumars eftir nokkuð vel heppnaða lánsdvöl á síðustu leiktíð, þrátt fyrir að hafa glímt við meiðsli.
Hann hefur hins vegar ekkert komið við sögu í undanförnum leikjum eftir að hafa brotið agareglur félagsins með því að skella sér á tveggja daga fyllerí þar sem hann missti meðal annars af einni æfingu. David Moyes, stjóri Everton, er þó tilbúinn að gefa honum annað tækifæri.
Samkvæmt TeamTalk kemur ekki til greina að rifta lánssamningi Grealish í janúar, en hann þarf að sanna sig á æfingum í landsleikjahléinu ætli hann sér að vinna sæti sitt í byrjunarliðinu aftur.
Grealish hefur aðeins komið við sögu í sex leikjum með Everton á tímabilinu.