12.01.06 - 11:25
Magnús Már Einarsson
Agger til Liverpoool (Staðfest)

Agger í baráttu við Steven Gerrard í landsleik en þeir verða nú liðsfélagar.

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur gengið frá kaupunum á danska varnarmanninum Daniel Agger en hann kemur frá Bröndby fyrir kaupverð sem talið er vera um 5,8 milljónir punda.
Agger gerði fjögurra og hálfs árs samning við Liverpool eftir að hann stóðst læknisskoðun og samdi um kaup og kjör við liðið en hann var fljótur að því eftir að Bröndby samdþykkti tilboð í hann í gær. Þessi tvítugi leikmaður er annar varnarmaðurinn sem Liverpool fær í þessum mánuði en Jan Kromkamp er einnig nýkominn til liðsins.
Agger gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Tottenham um helgina en Rafael Benitez stjóri Liverpool sagði meðal annars um leikmanninn í gær: ,,Ég tel að hann sé mjög klár varnartýpa. Staðsetningar hans eru góðar til dæmis og hann les leikinn vel. Að sjálfsögðu eru svæði sem við þurfum að bætta en hann er ungur og við munum hjálpa honum. Hann mun vera möguleiki í aðalliðinu innan tíðar."