12.01.06 - 11:35
Magnús Már Einarsson
Mendes og Davis til Portsmouth (Staðfest)

Pedro Mendes.

Mynd: Getty Images

Pedro Mendes.

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur fengið miðjumennina Pedro Mendes og Sean Davis frá Tottenham og þá er líklegt að varnarmaðurinn Noe Pamarot fari sömu leið.
Talið er að Portsmouth muni borga Tottenham 7,5 milljónir punda fyrir leikmennina þrjá en þeir gætu spilað sinn fyrsta leik gegn Everton á laugardaginn þó ekki sé víst hvort Pamarot verði búinn að ganga frá samningum þá.
Allir leikmennirnir komu til Tottenham sumarið 2004 en þeir hafa ekki fengið mörg tækifæri á þessari leiktíð. Hinn 26 ára gamli Mendes hefur leikið sex leiki og Davis einn en Pamarot hefur einnig átt erfitt með að festa sig í sessi. Hann kannast hinsvegar við sig hjá Portsmouth þar sem hann var í láni 1999/2000.
Portsmouth hefur nú eytt um tólf milljónum punda í janúar og talið er að liðið sé einnig á eftir Lee Hendrie miðjumanni Aston Villa og þá vill liðið einnig krækja í markvörð. Auk þess er norski sóknarmaðurinn Steffen Iversen að æfa með liðinu en hann er án liðs eftir að hafa yfirgefið Valerenga á dögunum.