Fotbolti.net
12.01.06 - 13:24
Magnús Már Einarsson

Flitcroft til Sheffield United (Staðfest)

Flitcroft í baráttu við Jermaine Pennant.

Flitcroft í baráttu við Jermaine Pennant.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur fengið miðjumanninn Gary Flitcroft frítt frá Blackburn Rovers og hefur leikmaðurinnn skrifað undir eins og hálfs árs samning við liðið.
Hinn 33 ára gamli Flitcroft mun fara beint í leikmannahóp Sheffield fyrir leikinn gegn Ipswich á laugardaginn en Neil Warnock stjóri liðsins var aðalástæðan fyrir því að hann fór til Sheffield. ,,Hann (Warnock) hefur verið á eftir mér í einhvern tíma og ég vil endurgjalda honum traustið með því að hjálpa honum að komast í úrvalsdeildinni," sagði Flitcroft sem hefur verið hjá Blackburn frá 1996.

Sheffield sem er í öðru sæti í ensku fyrstu deildinni hefur hinsvegar hætt við að bjóða aftur í Cameron Jerome hinn 19 ára framherja Cardiff eftir að tilboði upp á tvær milljónir punda var hafnað á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.