12.01.07 - 06:00
Emiliano Insua kominn til Liverpool (Staðfest)

Benítez er duglegur að fá til sín unga leikmenn um þessar mundir.

Mynd: Getty Images

Liverpool gekk í gær frá átján mánaða lánssamningi við Argentínska félagið Boca Juniors um ungan vinstri bakvörð, Emiliano Insua. Þessi ungmennalandsliðsmaður Argentínu þykir vera mikið efni en Liverpool hefur einnig tryggt sér forkaupsrétt á stráknum.
"Hann er góður, ungur leikmaður sem hefur mikla hæfileika," sagði Rafael Benítez, stjóri Liverpool um sinn nýjasta leikmann sem kemur til með að berjast um sæti í aðalliði Benítez samkvæmt fregnum frá Englandi.
Mark Gonzalez verður frá í nokkrar vikur auk þess sem Harry Kewell berst enn við erfið meiðsli. Stephen Warnock gæti verið á leiðinni til Blackburn í staðinn fyrir Lucas Neill og því er líklegt að John Arne Riise og Fabio Aurelio muni skipta vinstri bakvarðarstöðunni og kantstöðunni á milli sín.
Fari Warnock gæti Insua því verið hent beint út í djúpu laugina ef svo ber undir en Liverpool gekk reyndar frá samningum fyrir nokkru síðan. Þá átti hann eftir að fá atvinnuleyfi sem hann hefur nú fengið en talið er að mörg stórlið í Evrópu hafi viljað fá hann í sínar raðir.

Heimild: Opinber heimasíða Liverpool