12.01.07 - 09:59
Hafliði Breiðfjörð
Kári Árnason til AGF (Staðfest)

Kári Árnason á æfingu með íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Landsliðsmaðurinn Kári Árnason sem hefur leikið með Djurgården í Svíþjóð undanfarin ár hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við danska félagið AGF en áður höfðu félögin komist að samkomulagi um kaupverð.
Kári hafði tekið ákvörðun um að hætta hjá Djurgården og leita sér að nýju félagi í sumar og skipti ekki um skoðun þrátt fyrir að Sigurður Jónsson fyrrum þjálfari hans hjá Víkingum hafi verið ráðinn nýr þjálfari sænska liðsins. Hann hafði æft á reynslu hjá Charlton á Englandi en AGF bauð honum samning.
Kári Árnason hóf feril sinn með Meistaraflokki hjá Víkingum árið 2001 er hann lék fimm leiki í 1. deildinni og skoraði í þeim eitt mark. Hann hafði áður komið til félagsins frá Val árið 1999.
Árið 2002 lék hann 5 leiki í 1. deildinni og skoraði tvö mörk og ári síðar var hann orðinn fastur maður í liðinu og lék 16 leiki undir stjórn Sigurðar Jónssonar. Víkingar fóru upp í Landsbankadeildina það árið og 2004 var árið sem Kári sló í gegn en hann lék 15 leiki í deildinni og var að lokum seldur til Djurgården.
Á fyrsta tímabili Kára hjá Djurgården varð liðið sænskur meistari og Kári lék 21 leik með liðinu á því tímabili. Á síðustu leiktíð náði liðið hinsvegar aðeins sjötta sætinu í deildinni en hann hafði þá ekki átt fast sæti í liðinu að hluta vegna meiðsla, lék aðeins 14 af 26 deildarleikjum, þar af sjö í byrjunarliði.
Kári hefur átt fast sæti í A-landsliði Íslands að undanförnu og hefur leikið 12 leiki með liðinu síðan í mars 2005. Á þeim tíma hefur hann skorað eitt mark fyrir landsliðið, glæsimark gegn Svíum ytra haustið 2005.