12.01.07 - 15:42
Andri Fannar Stefánsson
Burnley fær Djemba-Djemba á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Burnley hafa fengið Eric Djemba-Djemba kamerúnskan miðjumann frá Aston Villa á láni út tímabilið en honum hefur gengið illa að festa sig í sessi á Villa Park.
Þessi 25 ára gamli leikmaður getur leikið með Burnley gegn Southampton í sínum fyrsta leik og sagði Steve Cotterill stjóri Burnley að hann myndi vafalítið styrkja liðið.
,,Eric (Djemba-Djemba) er mjög góður og þegar hann kemst í form verður hann mjög mikill styrkur fyrir liðið. Það segir mikið um hugarfar hans að hann sé viljugur að fara úr úrvalsdeildinni og í neðri deild," sagði Cotterill.
Djemba-Djemba kom frá Manchester United til Villa á 1,3 milljónir punda í janúar 2005 eftir að hafa gengið illa á Old Trafford þar sem hann spilaði einungis 39 leiki á átján mánuðum.

Heimild: BBC