Fotbolti.net
12.01.07 - 17:35
Andri Fannar Stefánsson

Daniele Padelli til Liverpool (Staðfest)

Þýðir koma Padelli endalok Jerzy Dudek hjá Liverpool ?

Þýðir koma Padelli endalok Jerzy Dudek hjá Liverpool ?

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hafa staðfest kaup þeirra á ítalska U21 árs landsliðsmarkverðinum Daniele Padelli frá Sampdoria og bíður nú aðeins leikheimildar.
Padelli sem var á láni hjá Crotone í annari deildinni á Ítalíu hefur skrifað undir samning út tímabilið og eru Liverpool með forkaupsrétt á kappanum við lok samningsins.

,,Hann er góður og ungur markmaður sem hefur verið valinn í landslið sinnar þjóðar. Hann mun gefa okkur góða möguleika í framtíðinni. Hann er með U21 árs landsliði Ítala og það segir þér að þú ert að kaupa mjög góðan mann."

,,Útsendararnir okkar hafa lagt harð að sér til að finna unga leikmenn fyrir félagið og ég er hæstánægður með að hafa fengið Padelli," sagði Benítez en lið hans mætir Watford í hádeginu á morgun, laugardag.

Heimild: Opinber heimasíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.