12.01.08 - 12:03
Hafliði Breiðfjörð
Ibra Jagne til Þórs á ný frá KA (Staðfest)

Ibra Jagne í leik með KA í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ibra Jagne í leik með KA í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór á Akureyri staðfesti á vefsíðu sinni í gærkvöld að Gambíumaðurinn Ibra Jagne sé genginn í raðir félagsins að nýju eftir að hafa verið síðasta tímabil hjá erkiféndunum í KA. Auk hans er Víkingur Pálmason kominn til félagsins frá Fjarðbyggð.
Ibra Jagne er að snúa aftur í raðir Þórs þar sem hann lék árin 2004 - 2006 áður en hann ákvað að ganga í raðir KA fyrir síðustu leiktíð.
Hann sagði svo samningi sínum við KA upp í haust og fór til heimalands síns, Gambíu, að nýju. Hann lék 19 leiki með KA í 1. deild í fyrrasumar en tókst ekki að skora mark. Hann á að baki 49 deildarleiki með Þór og hefur skorað í þeim 17 mörk.
Á vefsíðu Þórs kemur fram að hann hafi íhugað að fara alfarinn frá Íslandi en honum snerist hugur og gerði í gær þriggja ára samning við Þór sem gildir út árið 2010.
Víkingur Pálmason er 16 ára unglingalandsliðsmaður frá Norðfirði og var í leikmannahópi meistaraflokkks Fjarðarbyggðar síðastliðið sumar.
Hann þekkir til hjá Þór þar sem hann hefur æft með yngri flokkum félagsins undanfarin ár er hann hefur heimsótt fjölskyldu sína á Akureyri.

Heimild: Vefsíða Þórs