Fotbolti.net
12.01.15 - 12:15
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Tveir frá Leicester

Lazar Markovic stóð sig vel.

Lazar Markovic stóð sig vel.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea trónir eitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir helgina en liðið vann sinn leik á meðan Manchester City gerði jafntefli.

Baráttan um Meistaradeildarsæti harðnar, Arsenal vann Stoke örugglega, Liverpool fagnaði sigri en Manchester United tapaði fyrir Southampton.

Hér að neðan má sjá úrvalslið helgarinnar en Leicester á þar tvo fulltrúa eftir dýrmætan sigur gegn Aston Villa.


Petr Cech (Chelsea)
Hefur ekki spilað marga leiki á tímabilinu en hann átti nokkrar mikilvægar vörslur í fyrri hálfleik þegar Chelsea vann Newcastle.

Paul Konchesky (Leicester City)
Fyrrum enski landsliðsmaðurinn skoraði sigurmarkið gegn Aston Villa og átti flotta heildarframmistöðu.

Jose Fonte (Southampton)
Valinn í úrvalslið tímabilsins til þessa í útvarpsþætti Fótbolta.net og ekki að ástæðulausu.

Scott Dann (Crystal Palace)
Miðvörðurinn var effektívur á báðum endum vallarins.

Kieran Trippier (Burnley)
Trippier finnur sig betur með hverjum leiknum í úrvalsdeildinni.

Lazar Markovic (Liverpool)
Er byrjaður að réttlæta kaupverðið og var sífellt ógnandi gegn Sunderland. Skoraði eina mark leiksins.

Morgan Schneiderlin (Southampton)
Hélt Wayne Rooney í skefjum þegar Southampton vann Manchester United.

David Silva (Manchester City)
Sýndi takta í ansi háum gæðaflokki gegn Everton á Goodison Park.

Marc Albrighton (Leicester City)
Ógnaði sífellt með hraða sínum og beittum leikstíl.

Alexis Sanchez (Arsenal)
Valinn besti leikmaður tímabilsins hingað til í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Romelu Lukaku (Everton)
Skoraði ekki en það var ansi margt jákvætt varðandi frammistöðu Lukaku.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Sanchez er enn og aftur í úrvalsliðinu.

Sanchez er enn og aftur í úrvalsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.