Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. janúar 2020 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Var Fernandes að kveðja stuðningsmenn Sporting?
Bruno Fernandes er líklega á leið til Englands
Bruno Fernandes er líklega á leið til Englands
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes, leikmaður Sporting í Portúgal, skoraði tvö mörk í 3-1 sigri á Vitoria de Setubal í portúgölsku deildinni í gær en hann virtist kveðja stuðningsmenn félagsins í leiðinni.

Manchester United er í viðræðum við Sporting um kaup á Fernandes en portúgalska liðið er í fjárhagserfiðleikum þessa stundina.

Viðræðurnar eru komnar langt á veg og var Fernandes líklega að spila sinn síðasta leik fyrir félagið en hann gerði tvö mörk.

Hann er kominn með 7 mörk og 8 stoðsendingar á tímabilinu en hann gerði fyrra markið úr vítaspyrnu. Leikmenn Sporting fögnuðu með honum og þar horfði hann til stuðningsmanna og sendi koss til þeirra.

Fernandes hljóp þá að stuðningsmönnum í síðara markinu en hægt er að sjá bæði mörkin hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner