Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. janúar 2022 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frank biður stuðningsmennina afsökunar
Mynd: Getty Images
Thomas Frank stjóri Brentford þakkaði stuðningsmönnum liðsins fyrir að mæta á leikinn gegn Southampton en á sama tíma baðst hann afsökunar á leik liðsins.

Leikurinn endaði með 4-1 sigri Southampton sem hefur verið á góði skriði að undanförnu, ekki tapað í fimm síðustu leikjum.

„Í fyrsta lagi vil ég þakka stuðningsmönnunum fyrir að ferðast hingað. Það var mikill stuðningur, fullt hús. Ég biðst fyrirgefningar á því að við gátum ekki gert betur."

„Ef þú ert ekki 100% í leik í ensku úrvalsdeildinni hverja einustu sekúndu verður maður í vandræðum og í dag var okkur refsað harkalega," sagði Frank.
Athugasemdir
banner
banner
banner