Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 12. janúar 2026 16:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Linta snýr aftur til Íslands: Fullkominn tímapunktur
Fótbolti.net heimsótti Linta þegar hann var þjálfari Vozdovac í Serbíu.
Fótbolti.net heimsótti Linta þegar hann var þjálfari Vozdovac í Serbíu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: AL
Mynd: AL
Aleksandar Linta var í morgun tilkynntur sem nýr þjálfari ÍBV. Hann tekur við af Þorláki Árnasyni sem hætti störfum fyrir rúmum mánuði síðan.

Linta er fimmtugur Serbi sem þekkir vel til á Íslandi. Hann kom fyrst sem leikmaður árið 1997 og lék með ÍA, Skallagrími, Víkingi Ólafsvík, KA og Þór áður en hann varð spilandi þjálfari Grundarfjarðar þar sem hann hóf þjálfaraferilinn og var þar út tímabilið 2013.

Linta var fjölhæfur leikmaður, gat bæði spilað í vörninni og á miðsvæðinu. Hann hefur þjálfað í Serbíu, Slóveníu og Kasakstan og var síðast þjálfari U17 hjá Rauðu Stjörnunni í Belgrad. Linta ræddi við Fótbolta.net um tíðindin.

„Við komumst í samband í gegnum vin minn, fótboltavin," segir Linta sem gefur ekkert frekar upp varðandi hver sá aðili er.

„Frá því að ég fór frá Íslandi þá hef ég viljað koma til baka. Ég byrjaði að þjálfa og þetta var bara fullkominn tímapunktur: ÍBV er gott félag, með ríka hefð, þeir þurftu þjálfara og hér er ég. Ég er spenntur að koma og get ekki beðið eftir fyrstu æfingunni."

„Ég veit að það eru einhverjir leikmenn sem eru farnir frá síðasta tímabili en í samstarfi með stjórninni og aðstoðarþjálfurunum munum við finna lausnir á því og fá menn í staðinn,"
segir Linta aðspurður hvort hann muni geta nýtt sér tengingar sínar við Serbíu til að fylla í skörð sem hafa verið höggvin í leikmannahóp ÍBV. Oliver Heiðarsson er farinn til Króatíu, Sverrir Páll Hjaltested verður ekki áfram og Breki Baxter fór til Keflavíkur.

Óskar Elías Zoega Óskarsson verður aðstoðarmaður Linta.

„Þjálfarateymið verður eins og það var fyrir. Þeir sem eru fyrir þekkja liðið og vita hvernig andrúmsloftið er," segir Linta.

Í sumar mun Linta mæta ÍA, KA og Þór í Bestu deildinni. Hvernig verður það?

„Ég á vini í þessum félögum, menn sem ég spilaði með á sínum tíma sem eru komnir í aðrar stöður. Það verður áhugavert að spila á móti liðum sem ég spilaði með á sínum tíma."

Hvernig fótbolta mun ÍBV koma til með að spila undir stjórn Linta?

„Fótbolti er ástríðufull íþrótt og ég vona að fólk geti mætt og séð ástríðu í ÍBV liðinu næsta sumar," segir Linta að lokum. Von er á honum til Vestmannaeyja í lok vikunnar.
Athugasemdir
banner
banner