Fotbolti.net
12.02.15 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Liverpool á tvo

Smalling skoraði tvö í gær.

Smalling skoraði tvö í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Heil umferð var í ensku úrvalsdeildinni í gær og í fyrradag og hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar að mati Goal.com.

Liverpool, QPR og WBA eiga tvo fulltrúa í liðinu en að öðru leyti dreifist valið.


Robert Green var öflugur í markinu hjá QPR sem vann sinn fyrsta útsigur á þessu tímabili.

Chris Smalling skoraði tvö mörk fyrir Manchester United gegn Burnley og hann er í vörninni ásamt Jose Fonte sem átti enn einn stórleikinn með Southampton. Emre Can er þriðji maðurinn í vörninni eftir frábæra frammistöðu gegn Tottenham.

Willian kemst í liðið eftir að hafa tryggt Chelsea sigur á Everton og á hinum kantinum er Jordon Ibe sem hefur komið öflugur inn í lið Liverpool.

Darren Fletcher var góður í sigri WBA á Swansea og Leroy Fer átti sinn besta leik á tímabilinu með QPR áður en hann varð fyrir meiðslum í leiknum gegn Sunderland.

Argentínski sóknarmaðurinn Sergio Aguero skoraði tvö fyrir Manchester City gegn Stoke og Dame N’Doye byrjaði vel hjá Hull með marki og stoðsendingu gegn Aston Villa. Brown Ideye lék sama leik og N\'Doye en mark og stoðsending kemur honum í úrvalsliðið.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Brown Ideye er í liðinu.

Brown Ideye er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.