Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 12. febrúar 2020 21:57
Aksentije Milisic
Spænski bikarinn: Bilbao lagði Granada
Muniain.
Muniain.
Mynd: Getty Images
Athletic 1 - 0 Granada CF
1-0 Iker Muniain ('42 )

Undanúrslit spænska bikarsins hófust í kvöld en leikið er heima og að heiman. Fyrri undanúrslita viðureignin fór af stað þegar Athletic Bilbao og Granada áttust við.

Það var fyrirliðinn Iker Muniain sem kom heimamönnum yfir á 42. mínútu. Inaki Williams átti þá góða fyrirgjöf á Muniain sem skoraði af stuttu færi við mikinn fögnuð áhorfenda. Markið hjá Muniain má sjá neðst í fréttinni.

Bilbao var sterkara liðið í kvöld og á 60. mínútu skoraði Ander Capa en þá skarst VAR í leikinn og dæmdi markið af vegna rangstöðu.

Ekki var meira skorað í leiknum í kvöld og því fer Bilbao með eins mark forystu í síðari leikinn sem spilaður verður þann 5. mars.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner