Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 19:18
Elvar Geir Magnússon
Arnar Gunnlaugs: Við ætlum okkur aftur upp
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar var viðstaddur dráttinn í Brussel.
Arnar var viðstaddur dráttinn í Brussel.
Mynd: EPA
Ljóst er hvernig riðill Íslands fyrir fimmtu útgáfu Þjóðadeildarinnar verður. Ísland féll úr B-deildinni í fyrra og var í efsta styrkleikaflokki í C-deild fyrir dráttinn.

Ísland fékk Búlgaríu úr öðrum styrkleikaflokki, Eistland sem var lægst skrifaða liðið í þriðja flokki og svo sigurvegarann úr viðureign Lúxemborgar og Möltu sem mætast í umspili í mars.

Leikirnir fara fram í haust, í september, október og nóvember.

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari A karla, var viðstaddur dráttinn sem fram fór í Brussel og hafði þetta að segja um hann:

„Mér líst bara vel á þetta og hlakka til að takast á við verkefnið. Það voru ýmsar mögulegar útkomur og auðvitað áhugavert að velta því upp hvaða lið við hefðum getað fengið. En þegar allt kemur til alls þá snýst þetta bara um okkar lið og það sem við ætlum að gera í þessari keppni," segir Arnar við miðla KSÍ.

„Við ætlum okkur aftur upp í B-deild, það er ekkert flóknara en það, og það hefði engu breytt hvaða lið við hefðum fengið, markmiðið hefði alltaf verið það sama."

„Það er að koma fín mynd á prógrammið hjá okkur núna í vor, mars gluggann og svo júní, og við verðum klárir í Þjóðadeildarverkefnið í haust. Núna þarf KSÍ bara að fara að stilla upp miðasölu á þessa leiki og setja í gang, við þurfum að fá sem flesta á völlinn til að styðja við strákana."

Liðið sem vinnur riðilinn kemst beint í B-deildina, liðið sem endar í öðru sæti fer í umspil um sæti í B-deild. Liðið í þriðja sæti fer í umspil um fall og liðið í neðsta sæti fellur beint í D-deild.

RIÐILL ÍSLANDS:
Ísland (74)
Búlgaría (87)
Eistland (129)
Lúxemborg (102) eða Malta (161)
(Innan sviga er staða liðanna á heimslista FIFA)
Athugasemdir
banner
banner