Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   fim 12. febrúar 2026 07:57
Elvar Geir Magnússon
Dyche rekinn (Staðfest) - Forest ræðir við Pereira
Dyche er þriðji stjórinn sem Forest rekur á tímabilinu.
Dyche er þriðji stjórinn sem Forest rekur á tímabilinu.
Mynd: EPA
Forest ræðir við Vitor Pereira.
Forest ræðir við Vitor Pereira.
Mynd: EPA
Evangelos Marinakis, eigandi Forest.
Evangelos Marinakis, eigandi Forest.
Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur rekið Sean Dyche eftir 114 daga í starfi. Evangelos Marinakis, eigandi félagsins, ákvað að rífa í gikkinn eftir markalaust jafntefli gegn botnliði Wolves í gær.

Dyche tók við seint á síðasta ári og byrjaði vel en árangurinn hefur ekki verið frábær að undanförnu.

Samkvæmt breska ríkisútvarpinu hefur Marinakis þegar hafið viðræður við Vitor Pereira, fyrrum stjóra Wolves, um að hann taki við.

Þekkir Pereira vel
Samkvæmt TEAMTalk er Marinakis brjálaður yfir gengi liðsins en Dyche er þriðji stjórinn sem hann rekur frá Forest á þessu tímabili; fyrst Nuno Espirito Santo og svo Ange Postecoglou.

Marinakis þekkir hinn 57 ára gamla Pereira vel þar sem hann stýrði áður öðru liði sem er í hans eigu, Olympiakos í Grikklandi. Pereira var látinn fara frá Wolves í nóvember.

Marco Silva er annað nafn sem Marinakis er einnig hrifinn af. Silva var einnig áður stjóri Olympiakos. Silva er í dag stjóri Fulham og hefur náð merkilegum árangri þar á bæ.

Stuðningsmenn Forest bauluðu eftir markalausa jafnteflið í gær.

Forest er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum frá fallsæti. Liðið er að fara að mæta Fenerbahce í tveggja leikja umspili um að komast í 16-liða úrslitin í Evrópudeildinni. Liðið er úr leik í báðum bikarkeppnunum á Englandi.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner