Fotbolti.net
12.02.26 - 19:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Einar Karl frá FH í Hauka (Staðfest)

Einar Karl frá FH í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Haukar

Einar Karl Ingvarsson hefur skrifað undir samning við Hauka. Hann kemur til félagsins frá nágrönnunum í FH.

Einar Karl er 32 ára og er uppalinn í FH. Hann hefur einnig spilað með Fjölni, Val, Stjörnunni og Grindavík á ferlinum. Hann hefur alls spilað 489 leiki og skorað 71 mark.
Hann mun koma til með að hjálpa liðinu í baráttunni í 2. deild næsta sumar.

Haukar eru stórhuga fyrir komandi leiktíð. Guðjón Pétur Lýðsson var ráðinn þjálfari liðsins og þá verða þeir Óskar Örn Hauksson og Pablo Punyed aðstoðarmenn hans.

Haukar höfnuðu í 7. sæti deildarinnar með 31 stig á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.