Manchester United hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar ummæla Sir Jim Ratcliffe, einum af eigendum félagsins.
Ratcliffe sagði í gær í viðtali við Sky News að „innflytjendur hefðu tekið yfir Bretland“ og gagnrýndi Keith Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og sagði hann ekki geta tekið á erfiðum málum.
Ratcliffe sagði í gær í viðtali við Sky News að „innflytjendur hefðu tekið yfir Bretland“ og gagnrýndi Keith Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og sagði hann ekki geta tekið á erfiðum málum.
„Þú hefur ekki efni á... þú getur ekki verið með efnahag með níu milljónum manna sem eru á bótum og stöðugan straum innflytjenda. Innflytjendur hafa lagt landið undir sig," sagði Ratcliffe.
„Fjölbreyttur hópur leikmanna, starfsfólks og alþjóðlegt samfélag stuðningsmanna endurspeglar sögu og arfleifð Manchester; borgar sem allir geta kallað heimili.
Frá því að við hófum „All Red All Equal“ árið 2016 höfum við innleitt jafnrétti, fjölbreytileika og aðgengi í allt sem við gerum.
Við erum enn mjög staðráðin í að fylgja meginreglum og anda þeirrar herferðar. Þær endurspeglast í stefnu okkar en einnig í menningu okkar og eru styrktar með því að við höfum haldið staðli ensku úrvalsdeildarinnar um jafnrétti, fjölbreytileika og aðgengi." Segir m.a. í yfirlýsingu frá Man Utd.
Manchester United prides itself on being an inclusive and welcoming club.
— Manchester United (@ManUtd) February 12, 2026
We will continue to represent our people, our city and our fans with purpose and pride.
Athugasemdir



