Thomas Tuchel hefur skrifað undir framlengingu sem landsliðsþjálfari Englands og gildir nýr samningur hans framyfir Evrópumótið 2028.
Hann verður því áfram með enska landsliðið sama hvernig gengur á HM í sumar.
Hann verður því áfram með enska landsliðið sama hvernig gengur á HM í sumar.
EM 2028 verður haldið á Bretlandseyjum og er Tuchel spenntur fyrir því að stýra enska liðinu á stórmóti á heimavelli.
Tuchel hafði verið orðaður við Manchester United og stjórn enska sambandsins fagnar því að geta þaggað niður í þeim umræðum.
Mikil ánægja er með Tuchel síðan hann tók við Gareth Southgate en enska landsliðið vann alla leiki sína í undankeppni HM án þess að fá á sig mark.
Í gær var greint frá því að England mun spila vináttulandsleiki gegn Nýja-Sjálandi og Kosta Ríka í Flórída til að búa sig undir HM. England er í riðli með Króatíu, Gana og Panama á HM og leikur sinn fyrsta leik þann 17. júní.
Athugasemdir


