Fotbolti.net
12.03.06 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Gíslason í Þrótt (Staðfest)

Jóhannes Gíslason í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Merki

Fyrstu deildar lið Þróttar heldur áfram að styrkja sig en í gær skrifaði Jóhannes Gíslason undir tveggja ára samning við félagið en hann kemur til þeirra frá Val.
Jóhannes er ættaður af Skaganum og kemur til Þróttar nokkrum dögum eftir að bróðir hans, Þorsteinn Gíslason, gekk til liðs við félagið frá ÍA. Jóhannes er vinstri fótar leikmaður og getur leyst af hendi nokkrar stöður á vellinum.

Þróttarar fengu annan leikmann frá Val á dögunum er Þórhallur Hinriksson gekk í raðir þeirra en misstu Kristinn Hafliðason svo til Vals í vikunni.

Heimild: Vefsíða Þróttar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.