12.03.06 - 13:32
Magnús Már Einarsson
Carson lánaður til Sheffield Wednesday (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Liverpool hefur lánað markvörðinn Scott Carson til Sheffield Wednesday í ensku fyrstu deildinni og gildir lánssamningurinn í einn mánuð.
Hinn 24 ára gamli Carson kom til Liverpool frá Leeds á 750 þúsund pund í janúar 2005 en hann á alls níu leiki að baki fyrir Púllarana. Nú er hann hinsvegar á eftir bæði Jerzy Dudek og Jose Reina í goggunarröðinni og því hefur hann fengið að fara á láni.
Sheffield Wednesday sem er í 21.sæti og í harðri fallbaráttu í ensku fyrstu deildinni hefur auk þess fengið Mikkel Bischoff varnarmann frá Manchester City á láni.
Sheffield Wednesday sem er í 21.sæti og í harðri fallbaráttu í ensku fyrstu deildinni hefur auk þess fengið Mikkel Bischoff varnarmann frá Manchester City á láni.
