Fotbolti.net
12.03.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Þórarinn Máni og Óttar Steinn í Hött að nýju (Staðfest)

Þórarinn Máni fagnar marki í leik með Aftureldingu í fyrra.

Þórarinn Máni fagnar marki í leik með Aftureldingu í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Hattarmenn halda áfram að styrkja lið sitt fyrir átökin í 2. deild í sumar. Í síðustu viku fékk Óttar Steinn Magnússon leikheimild með Hetti en hann gekk til liðsins frá Keflavík.
Óttar Steinn er uppalinn hjá Hetti og lék með liðinu þegar það sigraði 3. deild 2006. Óttar er á elsta ári í 2. flokki og mun því nýtast Hetti bæði hjá meistaraflokki og 2. flokki. Óttar Steinn getur bæði leikið í vörn og á miðju og er efnilegur leikmaður.

Þá hefur Höttur gert samkomulag við Þórarinn Borgþórsson um að koma til félagsins en Þórarinn er einnig borinn og barnfæddur Egilsstaðabúi.

Þórarinn hefur síðustu ár leikið með Huginn Seyðisfirði og Aftureldingu í 2. deild og var samningsbundinn Aftureldingu út síðasta keppnistímabil.

Þórarinn er fjölhæfur leikmaður og kemur til með að styrkja lið Hattar mikið. Þórarinn er í námi í USA en kemur til landsins áður en Íslandsmótið hefst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.