Fotbolti.net
12.03.08 - 15:30
Magnús Már Einarsson

ÍH fær fimm leikmenn til liðs við sig (Staðfest)

Brynjar Þór Gestsson er genginn í raðir ÍH.

Brynjar Þór Gestsson er genginn í raðir ÍH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍH hefur fengið til liðs við sig fimm nýja leikmenn fyrir sumarið en liðið hafnaði í 8. sæti í 2.deild á síðasta leiktímabili.
Stefán Ólafur Sigurðsson kemur til ÍH frá Huginn Seyðisfirði. Þessi 26 ára varnarmaður hefur leikið 15 leiki með Huginn í 2.deild sem og um 30 leiki í 3.deild og bikarnum,

Brynjar Gestsson kemur til liðsins frá Bandaríkjunum þar sem hann er að þjálfa háskólalið í knattspyrnu.

Brynjar á að baki leiki með Haukum í fyrstu og annarri deild og 29 leiki með Huginn í 2 og 3.deild en hann var á síðasta leiktímabili spilandi þjálfari hjá Álftanes í 3.deild.

Guðjón Frímann Þórunnarson gekk til liðsins frá Aftureldingu í Mosfellsbæ en hann er hávaxinn framherji og lék áður með Hvíta Riddaranum í 3. deild. Hann á að baki 42 leiki í 2. og 3.deild og hefur skoraði í þeim 38 mörk.

Anton Rafn Jónasson kemur til ÍH úr 3.deildarliði KFS í Eyjum en hann hefur leikið með þeim 18 leiki undanfarin tvö ár og skorað fimm mörk.

Ómar Freyr Rafnsson kemur til liðs við ÍH frá nágrönnunum í Haukum. Hann lék tvo leiki með Haukum í 2. deild í fyrra og einnig átta leiki með Álftanesi í þriðju deildinni. Hann á að baki alls 69 mótsleiki fyrir Hauka, Huginn og Álftanes.

Von er á að ÍH bæti jafnvel enn fleiri leikmönnum við á næstu vikunum.
Guðjón Þórunnarson í leik gegn ÍH í fyrra.

Guðjón Þórunnarson í leik gegn ÍH í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.