Danijel Dejan Djuric er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið í KA og mun skrifa þar undir þriggja ára samning. KA var í baráttu við Breiðablik um undirskrift Danijels og í dag valdi hann KA.
Fjallað hefur verið um að KA greiði um 18 milljónir króna fyrir Danijel sem er 23 ára sóknarmaður, en það er óstaðfest upphæð. Sú upphæð myndi, samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net, gera hann að næsta dýrasta leikmanni sem íslenskt félag hefur keypt. Einungis Gylfi Þór Sigurðsson, sem Víkingur keypti af Val fyrir rúmu ári siðan, kostaði meira.
Danijel er uppalinn hjá Hvöt og Breiðabliki og fór svo ungur að árum til danska félagsins Midtjylland. Hann sneri aftur til Íslands sumarið 2022 og var hjá Víkingi í tvö og hálft tímabil áður en hann var keyptur til Istra í Króatíu.

Hjá Istra var Danijel ekki í stóru hlutverki, kom samkvæmt Transfermarkt við sögu í 19 leikjum, byrjaði einungis tvo þeirra, og lagði upp eitt mark.
Danijel á að baki 47 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim 19 mörk. Þá hefur hann tekið í þátt í þremur vináttuleikjum með A-landsliðinu.
Athugasemdir