Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 13:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Norskur framherji orðaður við Breiðablik
Mynd: Åsane
Norski framherjinn Sebastian Heimvik Haugland er í norska fjölmiðlinum Sunnmörsposten orðaður við Breiðablik. Breiðablik hefur verið í framherjaleit í vetur.

Þar var sagt frá viðræðum milli Hödd og Breiðabliks um kaup íslenska félagsins á markahæsta leikmanni norska liðsins á síðasta tímabili. Hann er samningsbundinn Hödd út árið og því þarf að kaupa hann.

Sebastian Haugland er 29 ára og spilar með Hödd í norsku B-deildinni. Hann er nokkuð öflugur markaskorari, hefur skorað 58 mörk í 89 leikjum á sínum ferli samkvæmt Transfermarkt sem ekki er með gögn um hans tölfræði í neðri deildum Noregs fyrir tímabilið 2023.

Hann er með 17 mörk skoruð í 43 leikjum í norsku B-deildinni og áður hafði hann skorað 37 mörk í 39 leikjum í fjórðu efstu deild Noregs.

Hann er réttfættur og skoraði níu mörk í norsku B-deildinni á síðasta tímabili, flest seinni hlutamótsins. Hann skipti í Hödd frá Åsane fyrir tímabilið 2025 en tímabilið 2024 skoraði hann átta mörk í 14 deildarleikum í B-deildinni eftir að hafa skorað 17 mörk í 15 leikjum fyrri hluta móts í D-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner