Reynir Sandgerði er búið að semja við þrjá leikmenn um að leika með liðinu á komandi misserum.
Sigurður Orri Ingimarsson er búinn að skipta yfir til Reynis eftir að hafa gert flotta hluti hluti á láni með liðinu á seinni hluta fyrrasumars.
Sigurður Orri kemur úr röðum ÍR en hann er uppalinn í Keflavík og lék með Reyni sumarið 2023. Hann er hraður kantmaður með 7 mörk í 23 leikjum á ferlinum fyrir Sandgerðinga.
Miðjumaðurinn Helgi Rúnar Hafsteinsson er þá búinn að gera tveggja ára samning en hann er fæddur 2004 og hefur komið mjög sterkur inn á undirbúningstímabilinu.
Að lokum er Gunnlaugur Yngvi Elínarson búinn að skrifa undir sinn fyrsta samning við meistaraflokk. Gunnlaugur er fæddur 2008 og spilar með öðrum flokki.
„Hann hefur sýnt miklar framfarir í vetur og það verður gaman að fylgjast með honum taka sín fyrstu skref á komandi tímabili með meistaraflokki Reynis," segir meðal annars í tilkynningu frá Sandgerði.
Reynir endaði í 5. sæti í 3. deild í fyrra með 38 stig úr 22 umferðum.
Athugasemdir


