12.04.07 - 16:16
Magnús Már Einarsson
Rodney Perry og Uche Asika í Völsung (Staðfest)

Rodney Perry er farinn í Völsung á Húsavík sem og Uche Asika.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Völsungur úr annarri deild hefur fengið bandarísku framherjana Uche Asika og Rodney Perry og munu þeir leika með liðinu í sumar. Þetta staðfesti Guðbjartur Ellert Jónsson formaður knattspyrnudeildar Völsungs við Fótbolti.net í dag en þess má til gamans geta að félagið heldur í dag upp á 80 ára afmæli sitt.
Perry hafði óskað eftir að fá að reyna sig hjá ÍA og þá höfðu hann og Uche báðir verið á reynslu hjá Reyni Sandgerði fyrr í vetur.
Perry lék 11 leiki með Víkingum í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð í öllum tilfellum sem varamaður og skoraði í þeim eitt mark. Það mark kom einmitt í lokaumferð Landbankadeildarinnar gegn ÍA er hann jafnaði leikinn í 1-1. Auk þess lék hann tvo leiki með liðinu í bikarnum.
Hann kom hingað til lands fyrir tímabilið 2005 og lék þá með Haukum þar sem hann lék 15 leiki í 1. deildinni og skoraði eitt mark. Hann lék þá 3 bikarleiki og skoraði eitt mark í þeim.
Uche Asika sem er 24 ára gekk til liðs við Þrótt Reykjavík síðastliðið sumar og spilaði sex leiki með liðinu, fjóra í fyrstu deildinni og tvo í VISA-bikarnum.