Fotbolti.net
12.04.16 - 19:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Freysi: Fullkominn dagur í Minsk

Auglýsing
Freyr Alexandersson var ánægður með leikinn

Freyr Alexandersson var ánægður með leikinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Allt það sem ég bað liðið um að gera var að vinna, plús að við myndum skora eitthvað af mörkum, halda hreinu, engin spjöld og engin meiðsli, þannig að þetta er fullkominn dagur í Minsk,“ sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, eftir 5-0 sigur á Hvít-Rússum í dag.
Freyr var gríðarlega ánægður í leikslok, en honum fannst liðið nálgast verkefnið vel og fagmannlega.

„Ég átti bara von á nákvæmlega þessu. Þetta spilaðist eins og við vorum búin að undirbúa okkur fyrir og þetta var í okkar hendi allan tímann.“

Íslenska liðið pressaði mjög ofarlega og var við algjör völd í leiknum. Það var Freyr sérstaklega ánægður með.

„Við pressuðum ágætlega unnum boltann yfirleitt mjög fljótt af þeim. Það er erfitt brjóta svona múr eins og þær eru með, en við náðum að gera það fimm sinnum og þetta var bara frábær frammistaða.“

Viðtalið frá KSÍ má sjá hér í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Heimild: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.