„Ég get verið stóri bróðir eða faðir, þeir þurfa ekki þjálfara," sagði Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, eftir sinn fyrsta leik við stjórnvölinn hjá félaginu.
Tottenham er tveimur stigum frá öruggu sæti eftir 1-0 tap gegn Sunderland í dag. Áhyggjurnar eru miklar þegar sex leikir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni.
Tottenham er tveimur stigum frá öruggu sæti eftir 1-0 tap gegn Sunderland í dag. Áhyggjurnar eru miklar þegar sex leikir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni.
„Þeir þurfa ekki að bæta sig í fótbolta," sagði De Zerbi um liðið sitt. „Þeir geta spilað betur og munu spila betur þegar þeir ná upp sjálfstraustinu. Ég þarf ekki að vinna mikið á vellinum, þeir eru góðir drengir og ég finn til með þeim."
„Ég vil gefa þeim sjálfstraust, þeir þurfa á því að halda."
De Zerbi segir að Tottenham hafi ekki átt skilið að tapa leiknum í dag. „Við spiluðum góðan leik, kannski ekki nóg til að vinna en við vorum óheppnir í nokkrum stöðum í fyrri hálfleik. Ég get ekki sagt neitt við leikmennina því þeir gerðu sitt besta. Við getum spilað betur og þeim getur liðið betur. Við þurfum að vinna í því."


