Fotbolti.net
12.05.05 - 13:54

Stuart Pearce tekur við Manchester City (Staðfest)

John Wardle og Stuart Pearce

John Wardle og Stuart Pearce

Canon
Stuart Pearce hefur verið ráðinn sem knattspyrnustjóri Manchester City. Pearce var ráðinn tímabundið fyrir tveimur mánuðum eftir að Kevin Keegan hætti.
Pearce er fyrrum landsliðsþjálfari Englands og hefur stýrt liðinu í 8. sæti ensku Úrvalsdeildarinnar og er liðið nálægt því að ná sæti í UEFA bikarkeppninni. Ef þeim tekst að sigra Middlesbrough á laugardaginn tryggja þeir sér 7. sætið og þar með inn í UEFA keppnina.

Ekki var búist við því að Pearce yrði ráðinn til frambúðar en frábær árangur hans varð til þess að engan veginn er hægt að sleppa honum. John Wardle stjórnarformaður sagði þetta á blaðamannafundi í hádeginu: "Hann hefur sýnt mikla færni og gæði sem knattspyrnustjóri klúbbsins bæði innan sem utan vallar."

Allt lið City styður ráðninguna heilshugar sem og stuðninsgmenn liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.