Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
banner
   þri 12. maí 2026 20:50
Brynjar Ingi Erluson
„Liverpool mun enda fyrir ofan Man Utd á næsta tímabili“
Merson telur að Liverpool verði betra á næsta tímabili
Merson telur að Liverpool verði betra á næsta tímabili
Mynd: EPA
Sparkspekingurinn Paul Merson er viss um að Liverpool endi fyrir ofan Manchester United á næsta tímabili en þetta sagði hann á Sky Sports.

Liverpool á ekki lengur möguleika á að ná Man Utd í baráttu um þriðja sætið.

Ríkjandi Englandsmeistarar Liverpool hafa heilt yfir verið slakir á þessari leiktíð, en Man Utd fann ekki taktinn fyrr en Michael Carrick tók við í byrjun árs.

Merson segir þetta tímabil aðeins hafa verið hikst hjá Liverpool sem mun taka aftur við sér á næstu leiktíð.

„Það hefur gengið á ýmsu hjá Liverpool. Ég finn til með þeim eftir allt sem hefur gerst og öll meiðslin sem þeir hafa glímt við.

„Hins vegar held ég að staðan sé ekkert svo slæm. Ég er nokkuð viss um að þeir endi fyrir ofan Manchester United á næsta tímabili, þrátt fyrir að ég viti ekki hvað mun gerast í sumar.“

„Af hverju? Það eru svo margir sem áttu gott tímabil með Man Utd, en það er varla raunin hjá Liverpool, fyrir utan kannski Dominik Szoboszlai.

„Þegar þú skoðar liðið hjá Man Utd þá eru sex eða sjö leikmenn sem hafa verið yfir meðallagi.“

„Alexander Isak verður í formi og Florian Wirtz með eitt ár í deildinni. Ég er því handviss um að Liverpool endi fyrir ofan Man Utd,“
sagði Merson.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner