Gunni Einars hefur trú á Leikni: Nógu sterkur hópur til að fara upp
Auglýsing

Gunni Einars var fastamaður í liði Leiknis fyrir tíu árum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Einarsson, þjálfari Kára, var svekktur með spilamennsku sinna manna í 5-0 tapi gegn Leikni R. í Mjólkurbikarnum í kvöld.
„Við fengum færi í fyrri hálfleik en svo fór þetta á rangan veg hjá okkur í seinni hálfleik. Búið og gert. Ætlum ekki að dvelja við þetta, það er leikur á miðvikudaginn," sagði Gunnar og var svo spurður út í hörkuna sem einkenndi leikinn.
„Það komu vissulega upp atvik í leiknum sem voru kannski ekki falleg en það er enginn slasaður svo allt í góðu."
Kári spilar við Selfoss í fyrstu umferð 2. deildar á Þjóðhátíðardag Íslendinga 17. júní. Gunni er mjög spenntur að fara af stað og hlakkar til að sjá Garðar Gunnlaugsson koma sér betur inn í lið Kára.
Hann hefur mikla trú á sínu fyrrum félagi Leikni R. í Lengjudeildinni og hefur trú á að þeir muni vera í toppbaráttunni. Hann segir markmið Kára vera að halda sig í 2. deild.
„Ég er sannfærður um að þetta er nógu sterkur hópur til að gera öfluga atlögu á að fara upp um deild. Og ég meina það.
„Okkar markmið eru að gera leikinn skemmtilegri, ná betri árangri en í fyrra, njóta, skemmta og bara, þú veist, hafa gaman."