Belgíski miðjumaðurinn Kevin de Bruyne hefur skrifað undir samning við ítölsku meistarana í Napoli. Samningurinn gildir til ársins 2027 og er möguleiki á einu ári til viðbótar.
De Bruyne hefur í fjöldamörg ár verið einn besti miðjumaður Evrópu en hann hefur lengi spilað með Manchester City og unnið fjölda titla þar.
De Bruyne hefur í fjöldamörg ár verið einn besti miðjumaður Evrópu en hann hefur lengi spilað með Manchester City og unnið fjölda titla þar.
Eftir tíu ár hjá Man City er núna komið að nýjum kafla hjá honum á Ítalíu.
De Bruyne er orðinn 33 ára gamall og var áhugi á honum frá bæði Bandaríkjunum og Sádi-Arabíu en hann ákvað að spila áfram á hæsta stigi í Evrópu.
Napoli varð ítalskur meistari fyrir stuttu og kemur De Bruyne til með að styrkja liðið enn frekar.
Athugasemdir