Fotbolti.net
12.06.25 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson

Efnilegasti leikmaður Grikklands til Brighton (Staðfest)

Efnilegasti leikmaður Grikklands til Brighton (Staðfest)
Canon

Mynd: Brighton

Gríski sóknarmaðurinn Charalampos Kostoulas er genginn til liðs við Brighton frá Olympiakos.
Kostoulas er af mörgum talinn efnilegasti leikmaður Grikklands um þessar mundir.

Þessi 18 ára gamli framherji skoraði 7 mörk er Olympiakos varð grískur deildarmeistari á árinu og hefur þá verið að standa sig vel með yngri landsliðum Grikklands.

Brighton náði samkomulagi við Olympiakos um kaup á Kostoulas á dögunum og voru kaupin frágengin í kvöld. Brighton greiðir allt í allt 31,4 milljónir punda fyrir leikmanninn sem skrifaði undir fimm ára samning við enska félagið.

Þetta er metsala í grísku úrvalsdeildinni, en Olympiakos átti einnig fyrra metið er Daniel Podence var seldur til Wolves fyrir 16,6 milljónir punda árið 2020.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.