Fotbolti.net
12.06.25 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson

Leroy Sane til Galatasaray (Staðfest)

Leroy Sane gengur í raðir Galatasaray um mánaðamótin

Leroy Sane gengur í raðir Galatasaray um mánaðamótin

Canon

Mynd: Galatasaray

Þýski vængmaðurinn Leroy Sane er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við tyrkneska félagið Galatasaray. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Sane, sem er 29 ára gamall, gengur formlega í raðir Galatasaray á frjálsri sölu um mánaðamótin og mun því spila með Bayern München á HM félagsliða.

Hann mun þéna 9 milljónir evra á ári hjá Galatasaray.

Þetta er svakaleg yfirlýsing hjá Galatasaray sem stefnir á að verja deildartitilinn á næstu leiktíð.

Sane spilaði í fimm ár með Bayern, en áður lék hann fyrir Manchester City og Schalke.

Hann á þá 70 A-landsleiki og 14 mörk með þýska landsliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.