Fotbolti.net
12.06.25 - 19:34
Brynjar Ingi Erluson

Thomas Frank tekinn við Tottenham (Staðfest)

Thomas Frank er nýr stjóri Tottenham

Thomas Frank er nýr stjóri Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Tottenham Hotspur hefur staðfest ráðninguna á Thomas Frank en hann tekur við stjórastöðunni af Ange Postecoglou sem var látinn fara á dögunum.
Frank náði frábærum árangri með Brentford á sjö árum sínum þar, en hann fór upp með liðið í ensku úrvalsdeildina árið 2021 og náð að gera liðið að samkeppnishæfu liði.

Hann skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Tottenham eða til 2028.

Tottenham greiðir um 10 milljónir punda fyrir Frank sem tekur við liðnu í ágætis stöðu.

Ange Postecoglou gerði Tottenham að Evrópudeildarmeistara á dögunum og kom liðinu í Meistaradeild Evrópu, en var síðan látinn fara á föstudag.

Það kom leikmönnum í opna skjöldu, enda hafði hann skilað félaginu titli í fyrsta sinn í 17 ár og náð aðalmarkmiði tímabilsins sem var einmitt að sækja titil og komast í Meistaradeild.

Ekki er ljóst hver mun taka við Brentford, en félagið er nú á fullu í leit að arftaka Frank.

Justin Cochrane, Chris Haslam og Joe Newton fylgja allir Frank til Tottenham og þá kemur Andreas Georgson einnig inn í teymið eftir að hafa unnið áður hjá Manchester United.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.