Fotbolti.net
12.06.25 - 11:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Trent Alexander-Arnold í Real Madrid (Staðfest)

Trent Alexander-Arnold.

Trent Alexander-Arnold.

Canon

Mynd: Real Madrid

Enski landsliðsmaðurinn Trent Alexander-Arnold var í dag formlega kynntur sem leikmaður Real Madrid.

Hann gekkst undir læknisskoðun í morgun og skrifaði svo undir fimm ára samning við félagið.
Nýtt númer og Trent verður aftan á bakinu
TENGT EFNI

Nýtt númer og Trent verður aftan á bakinu

Madrídarstórveldið borgar 10 milljónir evra til þess að losa Alexander-Arnold fyrr undan samningi við Liverpool en hann mun spila fyrir Madrídinga á HM félagsliða .

Alexander-Arnold hélt ræðu á spænsku þar sem hann sagði að það væri draumur að rætast að skrifa undir hjá Real Madrid.

„Að skrifa undir hjá félagi eins og Real Madrid gerist ekki á hverjum degi," sagði hann. „Ég get ekki beðið eftir því að gefa allt fyrir þetta merki."

„Hala Madrid," sagði bakvörðurinn svo.

Alexander-Arnold gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Real Madrid gegn Al-Hilal næsta miðvikudag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.