12.07.06 - 11:55
Hafliði Breiðfjörð
Laurent Robert til Levante (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski kantmaðurinn Laurent Robert hefur skrifað undir tveggja ára samning við spænska félagið Levante sem tryggði sér sæti í efstu deild þar í landi á síðustu leiktíð.
Robert sem er 31 árs gamall var lánaður frá Newcastle á Englandi til Portsmouth í byrjun síðustu leiktíðar en gekk svo í raðir Benfica í Portúgal í janúar félagaskiptaglugganum þar sem hann skoraði tvö mörk í 13. leikjum.
Hann á að baki níu landsleiki með Frakklandi. Hann hefur einnig spilað mðe Paris St. Germain og Montpellier í heimalandinu.
Levante tryggðu sér sæti í Primera Liga á Spáni með því að endaí þriðja sæti annarar deildarinnar á síðustu leiktíð. Robert er annar leikmaðurinn sem þeir fá til sín á viku því franski varnarmaðurinn Frederic Dehu gerði eins árs samning við þá í síðustu viku.