12.07.06 - 17:12
Guðmundur Dagur Ólafsson
Runström til Fulham (Staðfest)

Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham

Mynd: Getty Images

Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham

Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson hefur fengið aukna samkeppni um framherjastöðuna hjá félagi sínu Fulham því það hefur klófest sænska framherjann Björn Runström frá Hammarby en hefur áður spilað fyrir Bologna og Chievo á Ítalíu.
Chris Coleman, stjóri Fulham, er hæstánægður með að fá Runström en hann er í U21 árs landsliði Svía.
"Ég hef fulla trú á því að Björn eigi eftir að eiga bjarta framtíð hér hjá Fulham," sagði Coleman við heimasíðu félagsins. "Við ætlum okkur ekki aðeins að vera í topp 10 í deildinni heldur ætlum við okkur líka að byggja til framtíðar og Björn verður mikilvægur liður í því."
"Hann hefur ótrúlegt úthald og hann gefur varnarmönnum engan grið því hann vinnur stanslaust allan leikinn," bætti Coleman við.