12.07.06 - 22:10
Hafliði Breiðfjörð
Arnar Grétarsson í Breiðablik (Staðfest)

Arnar á æfingu með íslenska landsliðinu en hér er hann við hlið Veigars Páls Gunnarssonar.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Landsliðsmaðurinn Arnar Grétarsson er genginn í raðir síns gamla félags, Breiðabliks en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
Frá þessu er greint á vefsíðu stuðningsmanna Breiðabliks, Blikar.is en Arnar kemur frá belgíska félaginu Lokeren sem hann hefur leikið með undanfarin ár.

Arnar á að baki 139 deildarleiki með Breiðablik og í þeim náði hann að skora 26 mörk á tímabilinu 1988 til 1996. Hann hefur spilað 72 leiki með landsliði Íslands og í þeim hefur hann skorað tvö mörk.
Arnar fór frá Breiðablik árið 1996 og gekk þá til liðs við Leiftur á Ólafsfirði sem hann lék með sumarið 1997. Þaðan fór hann svo til AEK í Grikklandi þar sem hann lék í þrjú ár. Árið 2000 gekk hann svo í raðir Lokeren í Belgíu þar sem hann hefur verið síðan.
Hjá Lokeren lék hann með Marel Baldvinsyni sem sneri heim til Breiðabliks á ný fyrir þetta tímabil og því munu þeir hittast aftur í Kópavoginum og leika í græna búningnum.
Arnar verður löglegur í næsta leik Breiðabliks í Landsbankadeildinni gegn ÍBV í Vestmannaeyjum á þriðjudag.