Fotbolti.net
12.07.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Lee McCulloch til Glasgow Rangers (Staðfest)

Lee McCulloch

Lee McCulloch

Canon

Mynd: Getty Images

Skosku risarnir Glasgow Rangers hafa gengið frá kaupunum á miðju- og sóknarmanninum Lee McCulloch frá Wigan fyrir 2,5 milljónir punda.
McCulloch, sem er 29 ára gamall skoskur landsliðsmaður, skrifaði undir fjögurra ára samning við Walter Smith og félaga á Ibrox.

,,Ég er mjög ánægður að koma til klúbbs af þessari stærðargráðu, þetta er klúbbur með metnað og hefð. Ég hef beðið í sjö mánuði eftir þessu og það er frábært að þetta gerðist loksins,” sagði McCulloch á heimasíðu félagsins.

McCulloch var líklega leyft að fara frá Wigan eftir að þeir fengu til sín Jason Koumas frá West Bromwich Albion fyrir 5,3 milljónir punda.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.