12.07.07 - 12:40
Hörður Snævar Jónsson
Baird til Fulham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Chris Baird hefur gengið til liðs við Fulham. Hann hafnaði því að ganga til liðs við Sunderland. Fulham þarf að greiða Southampton rúmar 3 milljónir punda fyrir þennan Norður-írska varnarmann.
Allt benti til þess að Baird væri á leið til Sunderland. Southampton höfnuðu tilboði Fulham í hann, en þeir jöfnuðu tilboð Sunderland og þá vildi Baird fara á Craven Cottage.
Hann mun þar hitta fyrir fyrrum landsliðsþjálfara sinn, Lawrie Sanchez sem hætti með Norður-Íra í vor til þess að einblína á Fulham
Hann mun þar hitta fyrir fyrrum landsliðsþjálfara sinn, Lawrie Sanchez sem hætti með Norður-Íra í vor til þess að einblína á Fulham
Heimild: BBC
