Fotbolti.net
12.07.07 - 14:15
Hörður Snævar Jónsson

Sagna til Arsenal (Staðfest)

Sagna til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hafa fest kaup á Bacary Sagna frá Auxerre. Kaupverðið er ekki uppgefið. Sagna er 24 ára gamall bakvörður og getur leikið báðu megin, hann var valin í franska landsliðið á dögunum en fékk þó ekki að spila.
,,Hann er mjög fjölhæfur varnarmaður og hefur spilað mjög vel fyrir Auxerre síðustu ár," sagði Arsene Wenger við heimasíðu Arsenal.

,,Hann spilar oftast sem hægri bakvörður en getur líka spilað allstaðar í vörninni eða miðjunni. Hann er sterkur og snöggur," sagði Wenger sem er að styrkja sig eftir að Henry fór til Barcelona.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.