Fotbolti.net
12.07.07 - 22:39
Hörður Snævar Jónsson

Boulahrouz á láni til Sevilla (Staðfest)

Boulahrouz á láni til Sevilla (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Khalid Boulahrouz leikmaður Chelsea mun á næstu leiktíð vera á láni hjá spænska félaginu Sevilla. Boulahrouz kom til Chelsea fyrir seinustu leiktíð en náði ekki að sanna sig hjá liðinu.
Nokkur félög höfðu áhuga á því að fá þennan hollenska varnarmann til sín. Hann var talin vera á leið endanlega til Sevilla en mun þess í stað verða á eins árs láni hjá liðinu.

,,Chelsea Football Club og Sevilla hafa náð samkomulagi um eins ár lán á Khalid Boulahrouz," sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Chelsea.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.