Fotbolti.net
12.08.05 - 13:28
Magnús Már Einarsson

Dani til Olympiakos (Staðfest)

Dani til Olympiakos (Staðfest)
Canon
Spænski framherjinn Dani hefur gert tveggja ára samning við gríska liðið Olympiakos. Dani sem er þrítugur kemur frítt til liðsins frá Espanyol en hann skoraði fimm mörk með liðinu á síðustu leiktíð.
Þessi fyrrum leikmaður Barcelona, Real Madrid, Mallorca og Real Zaragoza sagðist hafa farið frá Espanyol vegna neikvæðni hjá félaginu í garð leikmanna.

Dani sagði við heimasíðu Olympiakos: ,,Ég er hér til að skora mörk, það er vinnan mín og ég er bjartsýnn á að mér muni vegna vel."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.