12.08.05 - 20:27
Hafliði Breiðfjörð
Saviola til Sevilla (Staðfest)

Argentíski framherjinn Javier Saviola gekk í kvöld í raðir Sevilla á Spáni en hann er lánaður þangað út leiktíðina frá meisturum Barcelona. Saviola sem er 23 ár gamall hafði verið orðaður við Espanyol en ekkert varð af því og nú mun hann fylla upp í það gat sem Julio Baptista skildi eftir sig hjá Seville er hann gekk í raðir Real Madrid fyrr í sumar.
Sevilla staðfesti í kvöld að Saviola yrði kynntur fyrir fjölmiðlum klukkan 11:00 í fyrramálið á leikvangi félagsins, Sanchez Pizjuan. Hann var á síðustu leiktíð í láni hjá Monaco í Frakklandi.
Saviola var keyptur til Barcelona árið 2001, þá aðeins 19 ára gamall, á 28 milljónir dollara frá River Plate í Argentínu eftir að hafa slegið í gegn á heimsmeistaramóti unglinga það ár.
Þar var hann markahæstur í mótinu með ellefu mörk þar af eitt í úrslitaleiknum gegn Ghana sem vannst 3-0. Hjá Barcelona hefur hann skorað 44 mörk á þremur leiktíðum en hefur fallið niður goggunarröðina eftir kaup á Samuel Eto´o og Henrik Larsson. Hann skoraði 17 mörk fyrir Monaco á síðustu leiktíð í öllum keppnum.