12.08.06 - 12:42
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Isaksson til Man City (Staðfest)

Isaksson mun spila undir stjórn Stuart Pearce á næsta tímabili

Mynd: Getty Images

Isaksson mun spila undir stjórn Stuart Pearce á næsta tímabili

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur gengið frá kaupunum á sænska landsliðsmarkverðinum Andreas Isaksson og skrifaði hann undir þriggja ára samning við félagið.
City eru sagðir þurfa borga tvær milljónir punda fyrir þennan hávaxna Svía sem kemur frá Rennes í Frakklandi en það er einmitt sama félag og Petr Cech var hjá áður en hann fór til Chelsea.
Isaksson, sem er 24 ára gamall, spilaði fyrir Svía á Heimsmeistaramótinu í sumar og spilaði sinn 42 landsleik þegar þeir duttu út á HM gegn gestgjöfunum frá Þýskalandi.
Isaksson, sem er 24 ára gamall, spilaði fyrir Svía á Heimsmeistaramótinu í sumar og spilaði sinn 42 landsleik þegar þeir duttu út á HM gegn gestgjöfunum frá Þýskalandi.
