Fotbolti.net
12.08.06 - 17:56
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Oliver Kapo til Levante á láni (Staðfest)

Kapo fagnar hér marki með Pavel Nedved

Kapo fagnar hér marki með Pavel Nedved

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Oliver Kapo hefur verið lánaður til spænska félagsins Levante frá Juventus og mun hann vera hjá félaginu út þetta tímabil.
Kapo kom til Juventus árið 2004 en spilaði aðeins 14 leiki fyrir félagið áður en hann var lánaður til Monaco í Frakklandi.

Kapo er annar leikmaðurinn frá Ítalíu sem gengur til liðs við Levante í sumar en reynsluboltinn Damiano Tommasi færði sig einnig yfir til félagsins frá Roma.

Þá er Juventus þessa stundina að leita að sóknarmanni til að fylla það stóra skarð sem Zlatan Ibrahimovic skildi eftir sig og Argentínumaðurinn Julio Ricardo Cruz hjá Inter sterklega orðaður við félagið.

Félögin eru sögð hafa rætt saman í gær en félögin mættust einmitt á Trofeo Moretti æfingamótinu eins og Fótbolti.net greindi frá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.