Fotbolti.net
12.08.07 - 14:06
Sindri Þór Þorgeirsson

Lua Lua til Olympiakos (Staðfest)

Lomana Lua Lua fékk ósk sína uppfyllta

Lomana Lua Lua fékk ósk sína uppfyllta

Canon

Mynd: Getty Images

Lomana Lua Lua framherji Portsmouth gekk í dag til liðs við gríska liðið Olympiakos. Olympiakos staðfestu þetta á heimasíðu sinni í morgun og þar kemur fram að Lua Lua skrifi undir þriggja ára samning við félagið.
Lua Lua hefur leikið með Portsmouth undanfarin 3 ár en hann hafði sagt Harry Redknapp stjóra liðsins að hann vildi spila meira í stöðunni fyrir aftan framherjana og hann vildi einnig flytjast frá Englandi.

Fjölmiðlar í Grikklandi segja kaupverðið á Lua Lua vera um þrjár milljónir evra en enskir fjölmiðlar segja verðið hins vegar vera nær fjórum milljónum evra, sem eru 2,8 milljónir punda.

Harry Redknapp hafði ekkert nema gott að segja um Lua Lua, sem hefur meðal annars spilað með Colchester og Newcastle United á Englandi.

,,Lua er frábær leikmaður en hann vil færa sig um set, hann vill breyta til. Hann vill spila í stöðunni fyrir aftan sóknarmennina og hann vil flytja til útlanda," sagði Redknapp.

,,Ég er ekki í vafa um að hann mun fara og verða frábær leikmaður fyrir Olympiakos. Hann mun fá að spila í meistaradeildinni fyrir þá. Hann hefur verið frábær úrvalsdeildarleikmaður og mun verða frábær fyrir þá," bætti Redknapp við.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.